Ritverk

Posted in uncategorized

Góðar stundir

Í tilefni af veðrinu sem nú gengur yfir, gerir það reglulega og mun halda göngunni áfram um ókomna tíð, má ég til með að koma með tillögu varðandi upplýsingagjöf til ferðamanna; Hvað ef allir ferðamenn sem koma til landsins og leigja ökutæki, eins þeir sem koma með eigin ökutæki með skipinu, fengju ekki lykla fyrr en þeir hafa horft á stutt kynningarmyndband þar sem eftirfarandi kæmi fram;
Upplýsingar um bann við utanvegaakstri og viðurlög
Útskýringar á veðurfari og veðurskiltunum
Upplýsingar um búfénað á vegum
Upplýsingar um malarvegi
Ítrekun á notkun safetravel.is
Að mínu mati þyrfti þetta ekki að vera langt myndband og ég held það yrði áhrifaríkara en bæklingur. Ég hef rætt við marga ferðamenn á Íslandi og nær allir sem ég hef spurt segja mér að þeir hafi einfaldlega fengið bíllykil og ekið af stað. Fæstir þeirra höfðu upplifað „veður“, enn færri ekið á malarvegum og sumir höfðu ekki einu sinni séð rollur, hvað þá að hafa hálfa kind í grillinu á bílnum. Margir hafa gerst sekir um utanvegaakstur án þess að vita að þeir væru að gera nokkuð ólöglegt. Spurningin um almenna skynsemi vaknar vissulega en það er staðreynd að enginn bannaði þeim þetta. Hver hefur ekki gert eitthvað gegn betri vitund með það sem afsökun að maður vissi ekki betur?
Ég vann í samtals tæpan áratug á besta vinnustað í heimi, á einu fallegasta svæði veraldar í Öræfum. Sjálfsagt hef ég hitt og talað við milljónir túrista á þeim tíma, misgáfulega eins og við eru sem betur fer öll.
Ég hef sjaldan orðið jafn hneykslaður og reiður (og í senn glaður að þau voru á lífi) og þegar ég hitti par sem dvaldi á svæðinu í nokkra daga. Þau komu frá Evrópu og voru með tvo syni sína með sér, á að giska 8-12 ára. Þau voru á eigin bíl, hóflega breyttum jeppa, og virkuðu á mig sem ósköp eðlilegt og vant útivistarfólk, vel útbúið með allskonar kort og græjur. Við spjölluðum aðeins öðru hvoru þessa daga og þau komu og kvöddu mig áður en þau fóru. Ég bað þau vel að lifa og þau sögðust jafnvel ætla að koma aftur þar sem þeim hafði ekki tekist að komast á toppinn… Bíddubíddu, hvaða topp?, spurði ég hissa. Þau höfðu semsagt ætlað sér, og reyndu, að ganga á Hvannadalshnúk, án leiðsagnar en með drengina!!! Þurftu að snúa við í u.þ.b. 1000 metrum vegna veðurs. Ég reyndi að halda kúlinu, vera kurteis og fagmannlegur og benti þeim á hætturnar sem þau höfðu stefnt sér í, kom meira að segja inn á kostnaðinn við leit að þeim hefði til þess komið. Maðurinn svaraði mér með að segja “Iss, fjöll eru fjöll hvar sem þau eru í heiminum, ég er búinn að ganga á fullt af þeim og get alveg prílað upp þennan hól.” Sumir telja sig vita betur en aðrir og það þarf óhjákvæmilega að bjóða það fólk velkomið til landsins líka eins og alla aðra. Það þarf aftur á móti að upplýsa fólk um landið okkar og þær hættur sem hér leynast. Töldu sig vita betur.
Eitt sinn hitti ég vörubílstjóra frá Ungverjalandi sem lenti í því að flutningabíllinn hans fauk á hliðina í aftakaveðri við Lómagnúp. Til allrar lukku slasaðist hann ekki en bíllinn eyðilagðist. (ATH hann kom fulllestaður með skipinu og var á leið til baka, tómur) Þrátt fyrir tungumálaörðugleika náðum við aðeins að spjalla saman og ég komst að því að hann hafði vissulega séð veðurskiltið við Kirkjubæjarklaustur sem varaði við hviðum yfir 50m/s. Þessi herramaður skildi þetta sem 50km/klst (ca 14m/s=) og taldi sig því í góðum málum. Vissi ekki betur.
Annar einstaklingur, sem ég frétti af en hitti ekki sjálfur, fór á leigðum húsbíl frá Höfn, tók skriðurnar og Hamarsfjörðinn þrátt fyrir að skiltið sýndi hviður upp í og yfir 60m/s. Þegar hann komst klakklaust (ótrúlegt en satt) inn á Djúpavog sagði hann að það hefði vissulega „tekið í“ og að sér fyndist Íslendingar stórsniðugir með þessi skilti, fannst flott að sýna lækkaðan hámarkshraða vegna veðurs í rauðu lengst hægra megin, hann hélt sig sko undir 60! Vissi ekki betur.
Öðru sinni hitti ég erlent par á bílaleigubíl sem hafði keyrt á rollu rétt áður en þau komu inn á planið til mín. Maðurinn kom til mín skjálfandi og hálfgrátandi og leiddi mig til konunnar sem var í móðursýkiskasti og hágrátandi í bílnum. Bíllinn var skemmdur og blóð og ull um allt. Ég spurði hvort þau höfðu verið vöruð við kindunum okkar, malarvegum, veðri eða utanvegaakstri… Ekkert. Ég hefði þurft að kunna áfallahjálp því ég tel þau hafa þurft á slíkri aðstoð að halda. Gerði það sem ég gat, fullvissaði þau um að nú yrði lambakjöt í matinn næstu vikuna og hringdi í bílaleiguna. Þetta fólk vissi ekkert um kindur, lausagöngu þeirra eða gæði íslenska lambakjötsins. Semsagt; Vissu ekki betur.
Ég get ekki talið alla þá sem hafa komið yfir sandana með brotnar rúður, sandblásna bíla og hjartað í buxunum, eins og raunin var í Öræfum í gær. Þó ég hafi ekki tekið þátt í óveðri gærdagsins þá hef ég upplifað annað eins. Því vil ég taka fram að það eru ekki eingöngu erlendir ferðamenn sem lenda í háska og tjóni, Íslendingar telja sig oft vita betur en skiltin og ég hef ósjaldan horft á eftir bílum leggja á sandana þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð, jafnvel með börn í bílnum. Margir koma aftur stuttu seinna með engar rúður, ekkert lakk og börnin sturluð af hræðslu. Oft hefur það komið fyrir að maður óskaði þess að hafa vald til þess að loka veginum og/eða hreinlega banna fólki að aka af stað. Það er því miður ekki raunin. Vissu ekki betur?!?
Í mínum huga er þessi hugmynd mín um kynningarmyndbandið tillaga að bættu upplýsingaflæði til ferðamanna sem hingað koma. Ég er ekki að leggja til neina töfralausn, það er örugglega fullt af neikvæðum punktum varðandi þetta sem ég hef ekki áttað mig á. Þó vil ég taka fram, til marks um eigið ágæti, að þegar íslensku- og málfræðiperrar fengu hjartastopp þegar einhver vogaði sér að setja útlenskt orð á veðurskiltin (CLOSED), þá var það fyrsta sem mér datt í hug að láta skiltið blikka LOKAÐ/CLOSED, og bjarga Íslandi þannig frá annars óhjákvæmilegri tortímingu vegna útlensks orðs á skilti.
Að lokum vil ég benda á ónýtta tekjulind sem blasir við; Legg til að við markaðsetjum Extreme óvissuferðir í umsjá ferðaþjónustu fatlaðra. Slagorðið gæti verið „Our trips are so extreme that we don´t even know where you will be going, or when you get there!!!“
Að endalokum; Ég er ekki reiðubúinn að borga 1500 krónur fyrir að fá að koma heim og horfa á fósturjörðina. Ég er ekki reiðubúinn að borga fyrir dóttur mína, unnustu eða tengdafjölskyldu sem hafa ekki íslenska kennitölu. Örlausn í blálokin; er ekki hægt að smyrja 100-500 kalli á flug/ferjumiða til landsins? Greitt af öllum, alltaf, og það þarf ekkert endilega að vera segja neitt frá því og þar af leiðandi ekkert að rífast um það. Er ekki von á milljón manns? Athugið að ef gjald yrði sett á ÖLL fargjöld, þá myndi gjaldið líka greiðast við brottför… nei, ég bara segi svona.
Góðar stundir

(Originally posted here https://www.facebook.com/ilmbjartur/posts/pfbid02V1Sc9yEWhjs2ByLVkwkqTuzKthSGeZWuExdY3SuNdDq9o33QR5gmkU4RFHM2wQEMl )