Beltin bjarga!!!
Þá er komið að þriðja, og vonandi síðasta, alvarlega umferðaróhappinu sem ég lent hef í. Svo merkilega vill til að á dögunum náðist myndband af árekstri sem atvikaðist nær nákvæmlega eins, utan nokkurra smáatriða.
Enn og aftur er það engin spurning að bílbelti áttu stóran þátt í því að enginn slasaðist alvarlega og ótrúleg tilviljun réði því að gangandi vegfarandi varð ekki fyrir öðrum bílnum. Linkur á myndbandið er neðst í þessum pistli.
Þetta óhapp átti sér stað á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar, sennilega milli 2000-2002. Systir mín var ökumaður og ég farþegi. Munurinn á okkar atviki og því sem náðist á myndbandið er sá að við vorum á ferð yfir gatnamótin gegn grænu ljósi, en ekki að taka af stað, bíllinn sem við ókum kastaðist ekki á þriðja bílinn heldur snerist um 270° á gatnamótunum. Vil taka fram að við vorum á breyttum Toyota Hilux og þyngd bílsins hefur verið í kringum tvö tonn svo höggið hefur verið mikið.
Strax eftir atvikið gaf sig á tal við mig maður og bauð sig fram sem vitni. Sá náungi hafði ætlað að ganga yfir Kringlumýrarbrautina, gegn grænum kalli, en til allrar hamingju átti hann tvö skref eftir að gangbrautinni þegar hinn bíllinn fór yfir gatnamótin á fullri ferð gegn rauðu ljósi og í hægri hliðina á okkur. Það er varla spurning hvernig hefði farið hefði hann verið sekúndu fyrr á ferðinni.
Við áreksturinn lamdist höfuðið á mér svo fast í hliðarrúðuna að ég skil ekki hvers vegna hún brotnaði ekki. Systir mín fékk mikinn hnykk á bakið en bílbeltin héldu okkur í sætunum og inni í bílnum og við sluppum ótrúlega vel. Ég veit að einhverjir í hinum bílnum hlutu skurði en við fréttum ekki af alvarlegri áverkum.
Enn og aftur björguðu beltin, enn einu sinni vil ég ítreka mikilvægi þeirra:
BELTI!!! ALLTAF!!!
(Originally posted here: https://www.facebook.com/share/p/1EjMGm3LxV/