Ég var beðinn um að stilla þennan status á “public”, öllum frjálst að deila að vild.
Þetta er EKKI status sem þú þarft að copy/paste-a á Facebook vegginn þinn.
Þetta er status um mannlegan breyskleika og þá staðreynd að hann birtist okkur öllum í ólíkum myndum á einn eða annan hátt á lífsleiðinni.
Það fer enginn í gegnum lífið áfallalaust. Margir þramma og þræla sér í gegnum afleiðingar og tekst það, aðrir þurfa tíma og aðstoð við að vinna úr áföllum og sumir jafna sig kannski aldrei almennilega. Við mannaparnir tökumst á við hlutina hver á sinn hátt, á jafn marga vegu og við erum mörg og mismunandi.
Mig langar að benda á þá augljósu staðreynd að hjálpin er til staðar, hjá ástvinum, fjölskyldu, fagfólki og jafnvel köttum. Skömmin og óttinn við að leita sér aðstoðar er mjög skiljanleg en þegar fyrsta skrefið, sem er ólýsanlega erfitt og þungt, er tekið verður eftirleikurinn mun léttari. Það eru allir reiðubúnir að hjálpa, sýna skilning og dæma ekki því sama hvað það er sem hrjáir þig þá ertu ekki ein/n um það og það hafa verið óteljandi margir aðrir sem hafa gengið í gegnum eitthvað svipað.
Við erum öll einstök (og almannavarnir, svona í ljósi stöðunnar) og við eigum öll rétt á að vera við sjálf og láta okkur líða vel á meðan. Litla þúfan sem veltir þunga hlassinu erum við sjálf, hlassið er bugunin og vanlíðanin og ef við náum aðeins að stjaka við því þá bifast hlassið og að lokum kemst það af stað, rúllar á fullu niður þessa snarbröttu brekku sem við höfum eytt lífinu í að príla upp með tilheyrandi hælsærum, skrámum, rispum, áföllum og rifrildum til að komast upp á þennan topp sem lífið ætti að vera. Þrátt fyrir að við höfum eytt allri okkar orku í að komast upp þessa ófæru þá er ótrúlegur léttir að horfa á eftir hlassinu húrra þarna niðureftir þar til að hverfur úr augsýn. Þá setjum við niður fána, förum að koma okkur fyrir þarna uppi á hæðinni og hefja nýtt líf eða halda áfram því góða sem við áttum fyrir.
YOLO, eða you only live once er eitt það mesta kjaftæði sem ég hef heyrt, því þú lifir á hverjum degi… en drepst bara einu sinni.
Originally posted here: https://www.facebook.com/share/p/15rr7rfJYt/